logo-for-printing

06. september 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2006

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2006 og til samanburðar í lok júlí 2006 og í lok desember 2005.

Gjaldeyrisforði bankans dróst saman um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 72,6 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.054 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn breyttist vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði og gengistaps.

Gengi íslensku krónunnar styrktist í ágúst um 4,9%.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu lítillega í ágúst og námu 110 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 11,6 milljörðum króna í mánaðarlok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,5 milljörðum króna í lok ágúst miðað við markaðsverð.

Seðlar og mynt í umferð utan Seðlabankans námu 14,2 milljörðum króna í lok ágúst og höfðu aukist um 0,9 milljarða króna frá áramótum.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir lækkuðu um 5,8 milljarða króna í mánuðinum og námu 32 milljörðum króna í ágústlok.

Skuldir Seðlabankans við ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 7,4 milljarða króna og námu 105,2 milljörðum króna í lok ágúst.

Grunnfé bankans lækkaði í ágúst um 6,2 milljarða króna og nam 46,2 milljörðum króna í mánaðarlok.

Héðan í frá mun Seðlabanki Íslands birta mánaðarlegt yfirlit um efnahag sinn í Hagtölum Seðlabankans á heimasíðu sinni.

Bankinn hættir því að birta sérstaka frétt um efnahaginn.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 37KB)

Nr. 35/2006
6. september 2006

Til baka