logo-for-printing

08. febrúar 2007

Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 14,25%. Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða kynnt rökin að baki ákvörðun bankastjórnar.

Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um vexti verður birt fimmtudaginn 29. mars n.k. 

Nr. 1/2007
8. febrúar 2007



 

Til baka