logo-for-printing

23. nóvember 2007

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2007

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. desember 2007 breytast vextir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. nóvember sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 16,5%, skaðabótakröfur 11% og verðtryggð lán 6,3%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Dráttarvextir haldast því óbreyttir, 25%, til og með 31. desember 2007 sbr. vaxtatilkynningu nr. 5/2007, dags. 14. júní 2007.

Sjá tilkynninguna í heild

Til baka