logo-for-printing

20. maí 2008

Moody's lækkar lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands í Aa1

Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands um eitt þrep í Aa1 úr Aaa og hefur einnig lækkað landsmat (e. country ceiling) á bankainnstæður í erlendri mynt í Aa1 úr Aaa.

Allar aðrar lánshæfiseinkunnir, þar meðtaldar landsmatið fyrir skuldbindingar í erlendri mynt, landsmatið fyrir bankainnstæður í íslenskum krónum og landsmat fyrir verðbréf í íslenskum krónum, voru staðfestar Aaa.

Allar lánshæfiseinkunnirnar eru nú á stöðugum horfum en voru áður á neikvæðum.

Fréttatilkynningu Moody's má nálgast hér (pdf)

Til baka