logo-for-printing

14. október 2008

Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans 2008 í Washington

Fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og sameiginlegur ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans voru haldnir dagana 11.- 13. október 2008 í Washington.

Svíþjóð gegnir formennsku í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltslanda í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á árunum 2008 og 2009. Seðlabankastjóri Svíþjóðar, Stefan Ingves, talaði fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni.

Ársfundarræða Norðurlanda og Eystrasaltsríkja var flutt af fjármálaráðherra Íslands, Árna M. Mathiesen. Ræður fulltrúa kjördæmisins eru birtar í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ársfundarræða Norðurlanda og Eystrasaltsríkja: Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra.pdf

Ræða Stefan Ingves, seðlabankastjóra í Svíþjóð, sem talaði fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni.pdf

Til baka