logo-for-printing

24. október 2008

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. nóvember 2008 breytast vextir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. ágúst sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 15,0%, skaðabótakröfur 10,0% og verðtryggð lán 5,9%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Dráttarvextir haldast því óbreyttir, 26,5%, til og með 31. desember 2008 sbr. vaxtatilkynningu nr. 2/2008, dags. 16. júní 2008.

Sjá tilkynninguna (24.10.2008) í heild (pfd-skjal)

Til baka