logo-for-printing

23. febrúar 2009

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2009

23. febrúar 2009

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2009

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. mars 2009 breytast vextir óverðtryggðra lána úr 20,0% í 19,0% og skaðabótavextir verða 12,7% en voru áður 13,3%. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 19,0%, skaðabótakröfur 12,7% og verðtryggð lán 5,9%.

Breyting hefur orðið á 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Samkvæmt breyttu ákvæði geta dráttarvextir nú breyst mánaðarlega. Einnig hefur ákvæði um vanefndaálag breyst þannig að nú er álagið fast 7%. Dráttarvextir verða óbreyttir 25,0% á tímabilinu 1. til 31. mars 2009.  Grunnur dráttarvaxta er 18,0% og vanefndaálag í 7,0%.

Sjá tilkynninguna í heild:

Tilkynning um dráttarvexti og fleira nr. 2/2009 (.pdf)

Til baka