logo-for-printing

02. mars 2009

Gjaldeyrishöft ekki afnumin að sinni

Samkvæmt reglum um gjaldeyrismál nr. 1130/2008 ber að endurskoða þær eigi síðar en 1. mars 2009. Seðlabanki Íslands hefur metið hvort nauðsynleg skilyrði þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft séu til staðar og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki.

Næsta endurskoðun á reglum um gjaldeyrismál mun eiga sér stað eigi síðar en 1. september 2009, samkvæmt ákvæðum laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992 með síðari breytingum. Seðlabanki Íslands metur reglubundið skilvirkni gjaldeyrishaftanna í samhengi við peningastefnuna og vinnur að áætlun um afnám þeirra í áföngum. Eitt af meginviðfangsefnum viðræðna stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú standa yfir er mat á því hvort forsendur þess að hægt sé gefa fjármagnsflutninga á milli Íslands og annarra landa frjálsa á ný séu fyrir hendi.

Frétt nr. 6/2009
1. mars 2009

Til baka