logo-for-printing

08. apríl 2009

Stýrivaxtaákvörðun

Svo sem tilkynnt var við fyrstu stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar 19. mars 2009 verður næsta ákvörðun um stýrivexti birt miðvikudaginn 8. apríl 2009.

Samkvæmt lögum nr. 5/2009 um breytingar á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands eru ákvarðanir um beitingu stjórntækja Seðlabanka Íslands í peningamálum teknar af peningastefnunefnd. Stjórntæki bankans teljast í þessu sambandi vera vaxtaákvarðanir hans, viss viðskipti við lánastofnanir, ákvörðun bindiskyldu og viðskipti
á gjaldeyrismarkaði. Ákvarðanir peningastefnunefndar skulu grundvallast á markmiðum bankans og vönduðu mati á ástandi og horfum í efnahags- og peningamálum og fjármálastöðugleika.

Í peningastefnunefnd sitja Svein Harald Øygard seðlabankastjóri, sem er formaður nefndarinnar, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, Anne Sibert prófessor og Gylfi Zoëga prófessor.

Sjá m.a. lög nr. 5/2009 um breytingar á lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands

Sjá einnig: Lög nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands

Til baka