logo-for-printing

05. júní 2009

Skýringar á hlut banka í erlendri stöðu þjóðarbúsins

Vegna fjölda fyrirspurna um hlut gömlu bankanna í erlendri stöðu þjóðarbúsins hefur skýringarlið verið bætt við töflu og tímaröð á Hagtöluvef bankans.

Um er að ræða áætlaðar eignir eða skuldir gömlu viðskiptabankanna þriggja sem nú eru í greiðslustöðvun. Þar sem ekki hefur verið lokið við að skilja á milli nýju og gömlu bankanna og ekki liggur fyrir niðurstaða um ábyrgð á innstæðum erlendra aðila ber að taka þessum tölum með fyrirvara um breytingar.

Sjá nánar í Hagtölum Seðlabankans:
Erlend staða þjóðarbúsins (tafla)
Erlend staða þjóðarbúsins (tímaröð)

Sjá einnig:
Ýmsar upplýsingar um erlenda stöðu þjóðarbúsins

Til baka