logo-for-printing

21. desember 2009

Fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum greiddur til Íslands

Í dag var fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum greiddur til Íslands í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Um er að ræða 300 milljónir evra. Ísland hefur heimild til að nýta alls 444 milljónir evra fram að annarri endurskoðun efnahagsáætlunarinnar sem áætlað er að fari fram um miðjan janúar 2010.

Ekki var talin þörf á frekari notkun á lánsheimildinni að sinni og flytjast því 144 milljónir evra til næsta tímabils sem hefst að lokinni annarri endurskoðun. Andvirði lánsins verður ávaxtað sem hluti af gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.

Gjaldeyrisforði bankans er nú um 458 ma.kr. eða sem nemur 2.495 milljónum evra. Það samsvarar vöruinnflutningi í rúmt ár miðað við síðustu 12 mánuði.

Enn eru ódregin umsamin lán að fjárhæð tæplega 2,3 milljarðar evra frá Norðurlöndunum, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Póllandi.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 39/2009
21. desember 2009

 Frétt nr. 39/2009 í heild með skýringarmynd (pdf)

Til baka