logo-for-printing

19. febrúar 2010

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 3/2010

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa lækkað um hálft prósentustig frá síðustu dráttarvaxtaákvörðun og eru nú 9,5%. Frá 1. mars næstkomandi verða vextir eftirfarandi: Vextir verðtryggðra lána verða 4,8% og standa því í stað. Vextir af óverðtryggðum lánum verða 8,5% og standa því einnig í stað sem og vextir af skaðabótakröfum sem eru 5,7%.
Dráttarvextir verða 16,5% fyrir tímabilið 1. mars til 31.mars 2010.

Sjá nánar:

Tilkynning um dráttarvexti nr. 3/2010 (pdf-skjal)

Til baka