logo-for-printing

10. apríl 2010

Samúðarkveðjur vegna fráfalls seðlabankastjóra Póllands

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sendi í dag bréf til Piotr Wiesioleks starfandi seðlabankastjóra Póllands með samúðarkveðjum vegna fráfalls Slawomirs Stanislaws Skrzypeks seðlabankastjóra Póllands í hinu hörmulega flugslysi í Rússlandi í dag.

Í bréfinu kom fram að samvinna Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Póllands hefur aukist á undanförnum árum og persónuleg tengsl skapast meðal annars í stuttri heimsókn Slawomirs og konu hans til Íslands sumarið 2008. Þá hafi Már kynnst Slawomir bæði í starfi fyrir Alþjóðagreiðslubankann í Sviss og enn nánar eftir að hann tók við embætti seðlabankastjóra á Íslandi. Í lok bréfsins tók seðlabankastjóri fram að hann vonaðist til að hægt yrði að heiðra minningu Slawomirs með því að þróa áfram vinsamleg samskipti og samvinnu seðlabanka Íslands og Póllands.

Nr. 7/2010
10. apríl 2010

Til baka