logo-for-printing

17. ágúst 2010

Samkomulag um fjármálastöðugleika milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna

Þriðjudaginn 17. ágúst 2010 gengur í gildi samkomulag um samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna yfir landamæri til að tryggja fjármálastöðugleika og samhæfa viðbrögð við fjármálaáfalli sem snertir fleiri en eitt ríki. Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum fagráðuneyta, seðlabanka og fjármálaeftirlits Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar auk Íslands.

Með samkomulaginu er komið á fót fyrsta evrópska samstarfshópnum á grundvelli samkomulags ríkja innan EES um samvinnu til að tryggja fjármálastöðugleika yfir landamæri. Þannig eru stjórnvöld Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna fyrst til að innleiða ákvæði þessa samkomulags EES sem undirritað var í júní 2008 („Memorandum of Understanding on Cooperation between the Financial Supervisory Authorities, Central Banks and Finance Ministries of the European Union on Cross-Border Financial Stability“)

Samkomulag Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna er ekki lagalega bindandi en á grundvelli þess verður unnt að efla samvinnu, samhæfa viðbrögð og vinnubrögð þegar hætta steðjar að, meðal annars með betri upplýsingagjöf milli stofnana.

Fjármálakerfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hafa á síðari árum orðið mjög samofin. Aukin þörf er því á að auka samvinnu eftirlitsstofnana til að tryggja fjármálastöðugleika. Markmið stjórnvalda ríkjanna er að draga úr hættu á því að fjármálakreppa kunni að breiða úr sér yfir landamæri. Ástand sem bundið er við einstakt ríki fellur ekki undir samkomulagið.

Settur verður á fót samráðshópur aðildarríkjanna um fjármálastöðugleika og munu löndin skiptast á að gegna formennsku í hópnum. Fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðuneytis Danmerkur mun verða fyrsti formaður hópsins.

Meðfylgjandi er afrit af samkomulaginu.

Frekari upplýsingar veitir efnahags- og viðskiptaráðuneytið.

Fylgiskjal: Co-operation agreement on cross-border financial stability, crisis management and resolution between relevant Ministries, Central Banks and Financial Supervisory Authorities of Denmark, Estonia, Finland, Iceland, Latvia, Lithuania, Norway and Sweden (pdf)

Frétt nr. 22/2010
17. ágúst 2010

 

Til baka