logo-for-printing

19. september 2010

Sala á danska bankanum FIH

Seðlabanki Íslands á veð í 99,89% hlut í danska bankanum FIH Erhvervsbank A/S (FIH) til tryggingar þrautavaraláni sem Kaupþing fékk hjá Seðlabanka Íslands í október 2008 að fjárhæð 500 milljónir evra. Í gær náðist samkomulag við hóp fjárfesta sem samanstendur af dönsku lífeyrissjóðunum ATP og PFA, sænska tryggingafyrirtækinu Folksam og fyrirtækinu CP Dyvig og mun fjárfestahópurinn kaupa 99,89% hlut í FIH.

Söluverðið er samtals 5 milljarðar danskra króna (sem nemur 103 milljörðum íslenskra króna eða 670 milljónum evra) og samanstendur af staðgreiðslu að fjárhæð 1,9 milljarðar danskra króna (sem nemur um 39 milljörðum króna eða um 255 milljónum evra), auk fjárhæðar sem nemur allt að 3,1 milljarði danskra króna (sem nemur um 64 milljörðum króna eða um 415 milljónum evra) sem verður leiðrétt með tilliti til þess taps sem FIH verður fyrir vegna eigna á efnahagsreikningnum þann 30. júní 2010 þar til 31. desember 2014 auk þess sem mögulegur hagnaður FIH af Axcel III sjóði kemur til hækkunar. Ennfremur verður til greiðslu fjárhæð sem tengd verður afkomu fjárfestahópsins af þessari fjárfestingu til 31. desember 2015.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að þessi niðurstaða sé ágæt miðað við aðstæður. Seðlabankinn muni strax fá talsverða fjárhæð í erlendum gjaldeyri þegar frágangi viðskiptanna sé lokið auk möguleika á að endurheimta veð sitt að fullu þegar fram líða stundir.

Viðskipti þessi eru háð samþykki viðeigandi eftirlitsstofnana.

J.P. Morgan sá um fjármálaráðgjöf fyrir Seðlabankann í þessum viðskiptum og lögfræðifyrirtækin Kromann Reumert og LEX sáu um lögfræðilega ráðgjöf fyrir bankann.
Frekari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.


Nr. 26/2010
19. september 2010

Til baka