logo-for-printing

08. desember 2010

Vextir Seðlabankans lækkaðir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka um 0,5 prósentur í 3,5% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum og á lánum gegn veði til sjö daga lækka um 1,0 prósentu í 4,25% og 4,5%. Þá lækka daglánavextir um 1,5 prósentur í 5,5%. 

Frétt nr. 34/2010
8. desember 2010

Sjá nánar: Vextir við Seðlabanka Íslands sem taka gildi 8. desember og 11. desember:
Vextir_8_desember 2010.pdf

 
Til baka