logo-for-printing

03. janúar 2011

Dregið úr gjaldeyrismisvægi fjármálastofnana

Allt frá falli viðskiptabankanna í október 2008 hefur misvægi milli erlendra eigna og skulda í efnahagsreikningum ýmissa innlendra fjármálafyrirtækja verið langt umfram æskileg mörk. Þetta misvægi eykur áhættu í rekstri fjármálafyrirtækja og kallar á eiginfjárbindingu. Líkt og seðlabankastjóri greindi frá í ræðu sinni á ársfundi Seðlabanka Íslands í mars sl. hefur bankinn leitað leiða til að draga úr ofangreindum vanda með það að markmiði að koma fjármálakerfinu í betra jafnvægi á nýjan leik og stuðla þannig að fjármálastöðugleika. Nánar er fjallað um gjaldeyrismisvægi fjármálastofnana í riti bankans, Fjármálastöðugleiki, fyrra og síðara hefti 2010.

Í þessu skyni bauð Seðlabankinn fjármálafyrirtækjum til viðræðna um samninga með það að markmiði að gjaldeyrismisvægi vegna hreinnar eignar í erlendum gjaldmiðlum sem skila tekjum í erlendri mynt verði ekki meira en sem nemur 15% af eigin fé þeirra. Undir lok ársins átti Seðlabankinn gjaldeyrisviðskipti vegna þessa. Annars vegar keypti bankinn gjaldeyri sem nam um 24,6 milljörðum króna (jafnvirði 160 milljóna evra). Hins vegar samdi hann um framvirk viðskipti sem námu um 47,9 milljörðum króna (jafnvirði 312 milljóna evra). Í heild munu þessi viðskipti auka gjaldeyrisforða Seðlabankans á samningstímanum um 72,5 milljarða króna (jafnvirði 472 milljóna evra).

Ofangreindar aðgerðir stuðla að auknum stöðugleika fjármálakerfisins, auka gjaldeyrisforða Seðlabankans og þann hluta hans sem ekki er fenginn að láni erlendis frá. Að meðtöldum reglulegum vikulegum kaupum á gjaldeyri sem hófust undir lok ágúst keypti Seðlabanki Íslands gjaldeyri á millibankamarkaði á árinu sem nam um 30 milljörðum króna, en þar telst ekki með sá gjaldeyrir sem fjármálafyrirtæki munu afhenda Seðlabankanum með framvirkum viðskiptum á komandi árum.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 1/2011
3. janúar 2011 

Til baka