logo-for-printing

02. mars 2011

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2010

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2010 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársins.

Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 53,6 ma.kr. á fjórða ársfjórðungi samanborið við 11,9 ma.kr. hagstæðan jöfnuð á fjórðungnum á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 30,1 ma.kr. og 1,7 ma.kr. afgangur var á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 83 ma.kr.

Sjá nánar í meðfylgjandi pdf-skjali:

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fjórða ársfjórðungi 2010 (pdf)

Til baka