logo-for-printing

06. júní 2011

Rannsóknarritgerð nr. 53 komin út á heimasíðu Seðlabankans

Út er komin rannsóknarritgerð nr. 53, „Exchange rate policy in small rich economies“, eftir Francis Breedon, Þórarinn G. Pétursson og Andrew K. Rose.

Í ritgerðinni er litið til reynslu smáríkja af mismunandi gengisstefnu. Vegna þess að kostnaður við að reka sjálfstæða peningastefnu er hlutfallslega hár velja smáríki yfirleitt einhvers konar fastgengi. Takmarkaður ábati virðist fylgja sveigjanlegu gengi fyrir þessi ríki en því fylgja auknar gengissveiflur en lítill munur virðist á sveiflum í öðrum mikilvægum efnahagsstærðum. Harðri fastgengisstefnu virðist því ekki fylgja auknar hagsveiflur fyrir þessi ríki.

Rannsóknarritgerðir Seðlabanka Íslands má nálgast hér: Working papers

Til baka