logo-for-printing

16. júní 2011

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur gegn greiðslu í ríkisverðbréfi. Útboðið er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011.

Aðalmiðlurum á skuldabréfamarkaði er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin. Seðlabankinn býðst til að kaupa 64 milljónir evra gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701. Tilboðum skal skilað fyrir 28. júní 2011. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðsins er að finna í útboðsskilmálum.

Markmið þessara aðgerða er að endurheimta þann gjaldeyri sem Seðlabanki Íslands nýtti til kaupa á aflandskrónum í fyrra útboði og selja krónur til aðila sem tilbúnir eru til að eiga þær í a.m.k. 5 ár. Þetta er gert með því að bjóða aðilum sem eiga gjaldeyri sem ekki er skilaskyldur að kaupa löng skuldabréf ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig jafnframt að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga þannig úr endurfjármögnunarþörf á meðan losað er um gjaldeyrishöft.

Viðhengi:

Útboðsskilmálar vegna útboðs Seðlabanka Íslands: Útboðsskilmálar 16. júní 2011 

Útgáfuskilmálar vegna skuldabréfs ríkisjóðs:  Lýsing á ríkisbréfum RIKS 30 0701

Frétt frá Lánamálum ríkisins um útgáfu á RIKS 30 0701: Útgáfa á RIKS 30 0701

Áætlun Seðlabanka Íslands um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011

Nánari upplýsingar veita Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands í síma 5699600.

Nr. 17/2011
16. júní 2011 

Til baka