logo-for-printing

23. ágúst 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 17. ágúst sl. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. september nk. og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2011.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru aftur á móti óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2011;

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,25%
• Vextir verðtryggðra útlána 4,3%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,50%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o. fl. 8/2011 (pdf)

Til baka