logo-for-printing

23. september 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvextir og vexti af peningakröfum nr. 8/2011 dags hinn 22. ágúst sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 11,50% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2011.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir eru einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2011;

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,25%
• Vextir verðtryggðra útlána 4,3%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,50%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 8/2011

Til baka