logo-for-printing

14. febrúar 2012

Útboðsáætlun Seðlabanka Íslands

Stefnt er að samhliða útboðum á eftirfarandi dögum þar sem Seðlabanki Íslands kaupir erlendan gjaldeyri annars vegar samkvæmt fjárfestingarleið og hins vegar í skiptum fyrir ríkisverðbréf:

28. mars 2012
9. maí 2012
20. júní 2012

Á sömu dögum er jafnframt stefnt að útboðum þar sem Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri.

Markmið útboðanna er að selja krónur til aðila sem eru tilbúnir að eiga þær í a.m.k. 5 ár með kaupum á ríkisverðbréfum eða fjárfestingum samkvæmt fjárfestingarleið sem kynnt var 18. nóvember 2011. Jafnframt gera útboðin fjárfestum kleift að selja krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Markmiðið með viðskiptunum er að auðvelda losun gjaldeyrishafta án þess að það valdi óstöðugleika í gengis- og peningamálum eða tefli fjármálastöðugleika í hættu. Aðgerðinni er einnig ætlað að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga úr endurfjármögnunarþörf á meðan losað er um gjaldeyrishöftin.
Útboðin ásamt skilmálum verða nánar auglýst síðar. Umsóknarfrestur um þátttöku í fjárfestingarleið rennur út 14 virkum dögum fyrir útboð.

Nr. 5/2012
14. febrúar 2012

Til baka