logo-for-printing

15. febrúar 2012

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 12. janúar 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701. Útboðin tvö sem fram fóru á milli kl. 10:00 og 11:00 í dag voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Sjá einnig skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011.

Seðlabankinn bauðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í útboðunum tveimur. Seðlabankinn áskildi sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðina.

Alls bárust 77 tilboð að fjárhæð 173,6 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 141,3 milljónir evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 240 kr. fyrir hverja evru. Vegna umframeftirspurnar í útboðinu voru tilboð sem bárust á genginu 240 krónur fyrir hverja evru lækkuð hlutfallslega um 50%. 

 Lykiltölur  Alls  RIKS 30 0701  Fjárfestingarleið
 Fjöldi tilboða  77  38  39
 Heildarupphæð EUR  173,6 m  114,5 m  59,1 m
 Tekin tilboð EUR  141,3 m  82,2 m  59,1 m


Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 30 0701. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 17,1 milljarð króna að nafnvirði.

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 14,2 milljarðar króna í útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 6/2012
15. febrúar 2012

Til baka