logo-for-printing

03. október 2012

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 5. september 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri.

Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum
Alls bárust 59 tilboð að fjárhæð 22,8 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 20,1 milljón evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 235 kr. fyrir hverja evru.

 

 Lykiltölur

Alls 

Ríkisverðbréf   Fjárfestingarleið
 Fjöldi tilboða

 59

 15

44 

 Heildarfjárhæð, EUR

 22,8 m.

11,7 m. 

11,1m. 

 Tekin tilboð, EUR

 20,1 m.

10,1 m. 

10,0m. 

 
Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 2,2 milljarða króna að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,7 milljarðar króna í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur
Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 235 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 34 tilboð að fjárhæð 18,3 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 4,9 ma.kr. tekið.

 Lykiltölur

Alls 

 Fjöldi tilboða

34

 Heildarfjárhæð, ma.kr.

 18,3

 Tekin tilboð, ma.kr.

 4,9

 

Samandregnar niðurstöður útboða í ríkisverðbréfa- og fjárfestingarleið
Í neðangreindri töflu má sjá samandregnar niðurstöður tólf gjaldeyrisútboða á þessu ári.

 Lykiltölur Alls   Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið
 Fjöldi tilboða

 406

 175

 231

 Heildarfjárhæð, EUR

 426,2 m.

 271,9 m.

 154,3 m.

 Tekin tilboð, EUR

 264,8 m.

 117,3 m.

 147,5 m.

 

Kaupendur ríkisverðbréfanna hafa að 86% verið lífeyrissjóðir og aðrir aðilar hafa keypt 14%. Undirliggjandi fjárfestingar fjárfestingarleiðarinnar skiptast með þeim hætti að hlutabréf hafa verið 56% kaupanna, skuldabréf 30%, fasteignir 13% og kaup í verðbréfasjóðum 1%. Samanlagðar fjárfestingar á grundvelli fjárfestingarleiðarinnar nema 295 milljónum evra sem samsvarar u.þ.b. 59 milljörðum ISK. Fjárfestingarnar nema 3,6% af vergri landsframleiðslu ársins 2011.

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 7. nóvember og 19. desember n.k.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri í síma 569-9600.

 

 

Nr. 37/2012
3. október 2012

 

Til baka