logo-for-printing

07. nóvember 2012

Niðurstöður gjaldeyrisútboða

Hinn 10. október 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 57 tilboð að fjárhæð 27,0 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 19,7 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 235 kr. fyrir hverja evru.

 Lykiltölur Alls  Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið 
 Fjöldi tilboða  57 14  43 
 Heildarupphæð EUR  27,0 m 3,2 m   23,8 m 
 Tekin tilboð EUR  19,7 m  2,9 m  16,8 m

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 625 milljónir króna að nafnvirði. Sem greiðslu

fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,6 milljarðar króna í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur:

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 236 kr. fyrir hverja evru. Tilboðum sem voru yfir útboðsverði var tekið að fullu, en tilboð sem voru jafnhá útboðsverði voru samþykkt hlutfallslega miðað við hlutfallið 33%. Alls bárust 18 tilboð að fjárhæð 10,3 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 4,7 ma.kr. tekið.

Lykiltölur Alls 
 Fjöldi tilboða 18 
 Heildarupphæð ma.kr. 10,3 
 Tekin tilboð ma.kr. 4,7 
Næsta gjaldeyrisútboð verður haldið 19. desember n.k.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

 

Frétt nr. 40/2012
7. nóvember 2012

Til baka