logo-for-printing

19. mars 2013

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 12. febrúar 2013 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 100 tilboð að fjárhæð 41,3 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 37,3 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 225 kr. fyrir hverja evru.

Lykiltölur

Alls

Ríkisverðbréf

Fjárfestingarleið

Fjöldi tilboða

100

32

68

Heildarupphæð EUR

41,3 m

6,0 m

35,3 m

Tekin tilboð EUR

37,3 m

3,2 m

34,1 m

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 663 milljónir króna að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 8,4 milljarða króna í útboðunum tveimur.

 

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 226 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 43 tilboð að fjárhæð 12,4 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 8,2 ma.kr. tekið.

Lykiltölur

Alls

Fjöldi tilboða

43

Heildarupphæð ma.kr.

12,4

Tekin tilboð ma.kr.

8,2

 

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin  30. apríl og 11. júní 2013.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

 

Frétt nr. 9/2013
19.3.2013

Til baka