logo-for-printing

03. september 2013

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 23. júlí 2013 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 77 tilboð að fjárhæð 21,0 milljón evra og var tilboðum að fjárhæð 19,4 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 210 kr. fyrir hverja evru.

 Lykiltölur

Alls 

Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið 
Fjöldi tilboða

 77

 22

 55

Heildarupphæð EUR

 21,0 m

 3,7 m

 17,3 m

Tekin tilboð EUR

 19,4 m

 2,9 m

 16,5 m

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 0,5 ma.kr. að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,1 ma.kr. í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 224 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 43 tilboð að fjárhæð 14,5 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 4,4 ma.kr. tekið.

Lykiltölur      Alls
Fjöldi tilboða     43
Heildarupphæð ma. kr.

 14,5

Tekin tilboð ma.kr.

 4,4

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 15. október og 3. desember 2013.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 29/2013
3. september 2013


Til baka