logo-for-printing

04. september 2013

Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallar Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vilja selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin þrjú sem haldin verða þriðjudaginn 15. október 2013 eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 og skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011 með síðari breytingum.

Eins og kom fram í áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta þá verður gætt að fjármálastöðugleika í hverju skrefi. Í því ljósi áskilur Seðlabankinn sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í öllum útboðunum þremur verður þremur dögum eftir að útboði lýkur.

Viðskiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Yfirlit um alla þessa aðila má finna á heimasíðu Seðlabankans. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu (upplýsingar hér að neðan) munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 25. september n.k.

Tilboðum skal skilað eigi síðar en 15. október 2013. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum.

Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta.

Útboðinu um kaup á krónum er ætlað að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn mun bjóðast til að kaupa.

Stefnt er að næsta útboði 3. desember 2013. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að eiga viðskipti á milli útboða þar sem verð hverju sinni tekur mið af útboðsverði síðasta útboðs á undan.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Fylgiskjöl:
Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á erlendum gjaldeyri í skiptum fyrir ríkisverðbréf. Viðskiptadagur: 15. október 2013 (pdf-skjal)

Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á erlendum gjaldeyri samkvæmt fjárfestingarleið. Viðskiptadagur: 15. október 2013 (pdf-skjal)

Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Viðskiptadagur: 15. október 2013 (pdf-skjal)

Áætlun Seðlabanka Íslands um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011

Skilmálar um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta (með breytingum. Birt fyrst 18.11.2011)

Milligönguaðilar, vörsluaðilar og aðalmiðlarar

Sjá ennfremur:

Frétt um fjárfestingarleiðina frá 18.11.2011

Nr. 30/2013
4. september 2013

 

Til baka