
31. mars 2014
Seðlabanki Íslands heldur gjaldeyrisútboð

Eins og kom fram í áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta þá verður gætt að fjármálastöðugleika í hverju skrefi. Í því ljósi áskilur Seðlabankinn sér rétt til að takmarka heildar viðskiptamagn með hliðsjón af áhrifum útboðanna á lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja. Endanleg útboðsfjárhæð ræðst af þátttöku. Útboðsfyrirkomulag er með þeim hætti að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á sama verði (e. single price). Uppgjör viðskipta í öllum útboðunum þremur verður tveimur dögum eftir að útboði lýkur.
Viðskiptabönkum er boðið að hafa milligöngu um viðskiptin um kaup á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Yfirlit um alla þessa aðila má finna á heimasíðu Seðlabankans. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í ríkisverðbréfaleiðinni eru EUR 10.000. Heildarfjárhæð tekinna tilboða í ríkisverðbréfaleiðinni takmarkast við ISK 400 milljónir. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu (upplýsingar hér að neðan) munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Það útboð er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboðshluta fjárfestingarleiðarinnar eru EUR 25.000. Frestur til að skila inn umsóknum rennur út í dagslok 22. apríl n.k.
Breytingar á útboðsskilmálum frá síðasta útboði:
• Heildarfjárhæð tekinna tilboða í ríkisverðbréfaleiðinni takmarkast við ISK 400 milljónir.
• Útboð samkvæmt ríkisverðbréfaleið og fjárfestingarleið munu hefjast kl. 9:30 og standa til kl. 10:30.
• Útboð þar sem Seðlabankinn kaupir íslenskar krónur fyrir erlendan gjaldeyri mun hefjast kl. 10:45 og standa til kl. 11:30.
• Uppgjör útboðanna þriggja sem fara fram á miðvikudegi að þessu sinni verður föstudaginn 16. maí (t+2).
Tilboðum skal skilað eigi síðar en 14. maí 2014. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna þriggja er að finna í útboðsskilmálum.
Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta.
Útboðinu um kaup á krónum er ætlað að stuðla að því að fjárfestar geti selt krónueignir sínar með skipulögðum hætti ef þeir svo kjósa. Lausafjárstaða bankanna er nægilega sterk til þess að standast tilfærslur á þeirri krónufjárhæð sem Seðlabankinn mun bjóðast til að kaupa.
Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 24. júní og 2. september 2014. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að eiga viðskipti á milli útboða þar sem verð hverju sinni tekur mið af útboðsverði síðasta útboðs á undan.
Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.
Fylgiskjöl:
Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á erlendum gjaldeyri í skiptum fyrir ríkisverðbréf. Viðskiptadagur: 14. maí 2014 (pdf-skjal)
Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á erlendum gjaldeyri samkvæmt fjárfestingarleið. Viðskiptadagur: 14. maí 2014 (pdf-skjal)
Útboðsskilmálar vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri. Viðskiptadagur: 14. maí 2014 (pdf-skjal)
Áætlun Seðlabanka Íslands um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011
Skilmálar um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta (með breytingum. Birt fyrst 18.11.2011)
Milligönguaðilar, vörsluaðilar og aðalmiðlarar
Sjá ennfremur:
Frétt um fjárfestingarleiðina frá 18.11.2011
Nr. 11/2014
31. mars 2014