logo-for-printing

09. maí 2014

Afmælisráðstefna 9. maí til heiðurs Jóhannesi Nordal

Jóhannes Nordal, fyrrverandi Seðlabankastjóri
Í ljósi reynslunnar nefnist afmælisráðstefna til heiðurs Jóhannesi Nordal í tilefni af níræðisafmæli hans. Ráðstefnan var haldin í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 9. maí. Ráðstefnan var haldin af Hagfræðideild Háskóla Íslands og Seðlabanka Íslands.

Fimm erindi verða flutt á ráðstefnunni:

Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytur fyrsta erindið og nefnir það: Jóhannes Nordal og peningamál á seinni hluta tuttugustu aldar.

Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri, flytur erindið: Jóhannes Nordal – fjölhæfur forystumaður. 

Ásgeir Jónsson, lektor við Hagfræðideild Háskóla Íslands, flytur erindið: Aftur til fortíðar? Er stýring peningamagns með bindiskyldu framtíðin?

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flytur erindið: Hvernig stuðlum við að virku og stöðugu fjármálakerfi á Íslandi?

Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, flytur erindið: Sjálfstæð peningastefna og fjármagnshöft.

Fundarstjóri er Sveinn Agnarsson.

Allir eru velkomnir.

Til baka