logo-for-printing

02. september 2014

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Bygging Seðlabanka Íslands

Hinn 15. júlí 2014 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:30 og 10:30 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 10:45 og 11:30. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Sjá fréttatilkynninguna í heild hér: Frétt nr. 31/2014 Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Til baka