logo-for-printing

05. september 2014

Upplýsingar um tölfræði undanþága

Seðlabanki Íslands hefur birt tölfræðilegar upplýsingar um afgreiðslu beiðna um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, sem má sjá hér. Þar má nú meðal annars finna almennar upplýsingar um afgreiðslutíma undanþágubeiðna og afgreiðsluhlutfall innsendra erinda.

Tölfræðilegar upplýsingar um afgreiðslu undanþágubeiðna eru jafnframt birtar í ársskýrslu Seðlabanka Íslands.

Upplýsingar um gjaldeyrismál má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið gjaldeyrismal@sedlabanki.is. Vinsamlegast athugið að hér er einungis átt við fyrirspurnir um gjaldeyrismál en beiðnir um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, verða að berast Seðlabanka Íslands bréflega ásamt gögnum er málið varða, sbr. 5. málsl. 1. mgr. 13. gr. o. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

Einnig er hægt að hringja í síma 5699600, en símatími lögfræðinga gjaldeyriseftirlits er frá 10:00 til 12:00 alla virka daga.

 

Til baka