logo-for-printing

17. október 2014

Yfirlýsing Seðlabanka Íslands vegna fullyrðinga fyrrverandi forstjóra Kaupþings um lánveitingu til bankans 6. október 2008

Bygging Seðlabanka Íslands
Vegna fréttar á forsíðu í Fréttablaðinu í dag og greinar í blaðinu eftir Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, um að Kaupþing hafi fengið 85 milljarða lán án þess að gengið hafi frá veði vill Seðlabankinn taka fram að þetta er ekki rétt.

Í framhaldi þess að ákvörðun var tekin um veitingu þrautavaraláns til Kaupþings 6. október 2008 gengu starfsmenn Seðlabanka Íslands strax í að fullvissa sig um að veðið fyrir láninu til Kaupþings stæði til reiðu. Lögmaður Kaupþings gerði hluthafaskrá í Danmörku jafnframt strax viðvart um að Seðlabankinn væri að taka veð í öllum hlutum FIH-bankans. Veðgerningurinn var fullkláraður fyrir lok viðskiptadags og réttarvernd veðsins hafði þá verið að fullu tryggð. Stjórnendur Kaupþings undirrituðu gerninginn fyrir lok viðskiptadags 6. október. Þannig að fullyrðingar um að ekki hafi verið gengið frá veðsetningu fyrr en einhverjum dögum síðar eru rangar.
Til baka