logo-for-printing

21. nóvember 2014

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2014

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands hinn 5. nóvember sl. sbr. tilkynningu bankastjórnar þar um sama dag.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. desember nk. og verða 12,75% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2014.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast eins og fram kemur hér fyrir neðan og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2014;

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 6,50% - (lækka úr 6,75%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,50% - (eru óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,33% - (lækka úr 4,50%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2014

Til baka