logo-for-printing

21. september 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2015

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2015 útgefinni 20. ágúst sl.

Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,25% fyrir tímabilið 1. – 31. október 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast aftur á móti og verða því sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2015;

  • Vextir óverðtryggðra útlána 6,60% - (voru 6,10%)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 4,40% - (voru 4,07%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2015 (pdf)

Til baka