logo-for-printing

19. nóvember 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta (stýrivextir) hefur breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 10/2015 sem gefin var út hinn 19. október sl. en peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að hækka stýrivextir um 0,25 prósentur hinn 10. nóvember sl. samanber tilkynningu þess efnis sama dag.

Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur og verða 13,50% fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2015;

• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05% - (voru 7,00%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (eru óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,70% - (voru 4,67%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2015

Til baka