22. apríl 2016
Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis 25. apríl
Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Tólfti fundur peningastefnunefndar með Alþingi var haldinn 25. apríl.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir ritari peningastefnunefndar mættu á fundinn.
Útsendingu frá fundinum má finna hér.
Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum er að finna hér.