
Útlánakönnun Seðlabanka Íslands

Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun á meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé og auk þess hvaða þætti þeir telji að hafi haft ráðandi áhrif á framboð á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 2. til 14. janúar sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara viðskiptabankanna.
Spurningu 8 í útlánakönnuninni, þar sem meðal annars er spurt um þróun vaxta á útlánum bankanna, hefur verið breytt. Til að fá betri mynd af þróun vaxta og væntingum um þróun þeirra er útlánum til fyrirtækja nú skipt upp í verðtryggð lán, óverðtryggð lán og útlán í erlendum gjaldmiðlum. Áður var ekki gerður greinarmunur á lánstegund í spurningunni en vextir mismunandi lánstegunda hafa þróast með ólíkum hætti að undanförnu.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að framboð bankanna á húsnæðislánum til heimila hafi dregist lítillega saman á síðustu þremur mánuðum en gert er ráð fyrir að framboð lánsfjár til þeirra verði óbreytt næstu sex mánuði. 1 Viðskiptabankarnir greindu lítils háttar samdrátt í eftirspurn heimila eftir íbúðalánum, bílalánum og öðrum lánum sem ekki eru með veð í íbúðarhúsnæði á síðustu þremur mánuðum. Bankarnir gera hins vegar ráð fyrir lítils háttar aukningu eftirspurnar heimila eftir íbúðalánum og bílalánum á næstu sex mánuðum. Samkvæmt svörum viðskiptabankanna hafa útlánareglur húsnæðislána verið þrengdar á síðustu þremur mánuðum og er gert ráð fyrir svipaðri þróun á næstu sex mánuðum. Aðgengi að markaðsfjármögnun og stýring á vaxta- og verðtryggingarójöfnuði eru þeir áhrifaþættir sem nefndir eru sem ástæða þrengingar útlánareglna. Bankarnir telja að samkeppni um útlán til heimila muni aukast ívið á næstu sex mánuðum, bæði við aðra banka og við aðra aðila á lánamarkaði. Vextir á verðtryggðum útlánum til heimila hafa hækkað á síðustu þremur mánuðum en vaxtaálagið hefur aftur á móti lækkað lítillega samkvæmt svörum bankanna. Helstu áhrifaþættir til hækkunar eru fjármögnunarkostnaður bankanna og hækkandi raunstýrivextir en lækkun á meginvöxtum Seðlabankans höfðu áhrif til lækkunar. Bankarnir gera ráð fyrir að verðtryggðir vextir til heimila eigi eftir að lækka á næstu sex mánuðum vegna væntinga þeirra um lækkun meginvaxta Seðlabankans ásamt því að fjármögnunarkostnaður lækki en til hækkunar eru nefndar væntingar um óbreytta raunstýrivexti. Gert er ráð fyrir lítils háttar hækkun á vaxtaálagi verðtryggðra lána á tímabilinu. Vextir á óverðtryggðum útlánum til heimila hafa lækkað á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni og gera allir þátttakendur ráð fyrir áframhaldandi lækkun á næstu sex mánuðum. Helstu áhrifaþættir eru lækkun meginvaxta Seðlabankans og minni fjármögnunarkostnaður bankanna, og væntingar um að sú þróun haldi áfram næstu sex mánuði.
Bankarnir greina frá því að framboð lánsfjár til fyrirtækja hafi verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum en þeir gera ráð fyrir lítils háttar aukningu framboðs útlána á næstu sex mánuðum. Eftirspurn fyrirtækja eftir lánum hefur aukist lítillega á síðustu þremur mánuðum, bæði á meðal minni og stærri fyrirtækja, og búist er við svipaðri þróun á næstu sex mánuðum. Reglur bankanna um lánveitingar til fyrirtækja voru óbreyttar á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni og er ekki gert ráð fyrir breytingum á næstu sex mánuðum. Þá vænta þeir þess að samkeppni um fyrirtækjaútlán aukist lítillega við aðra banka, aðra aðila og markaðsfjármögnun á næstu sex mánuðum. Verðtryggðir vextir á útlánum til minni fyrirtækja hafa hækkað á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna, einkum vegna hærri fjármögnunarkostnaðar þeirra en hækkandi raunstýrivextir eru einnig nefndir sem áhrifaþáttur til hækkunar. Bankarnir gera hins vegar ráð fyrir að verðtryggðir vextir á útlánum til minni fyrirtækja muni lækka lítillega á næstu sex mánuðum, vegna væntinga þeirra um lækkun meginvaxta Seðlabankans og að fjármögnunarkostnaður bankanna muni lækka. Aftur á móti gera þeir ráð fyrir að regluverk og óbreyttir raunstýrivextir geti unnið á móti lækkuninni. Vextir verðtryggðra útlána til stærri fyrirtækja hafa lækkað lítillega á síðustu þremur mánuðum samkvæmt svörum bankanna, en þeir gera ráð fyrir að vextirnir haldist óbreyttir á næstu sex mánuðum. Bankarnir greina einnig frá því að vextir og vaxtaálag á óverðtryggðum útlánum til fyrirtækja hafi lækkað á síðustu þremur mánuðum, bæði til minni og stærri fyrirtækja, og er gert ráð fyrir áframhaldandi lækkun á næstu sex mánuðum. Lækkun stýrivaxta og lægri fjármögnunarkostnaður eru sagðir þeir áhrifaþættir sem hafa hvað mest áhrif á þróunina, en regluverk vinnur á móti lækkuninni. Samkvæmt svörum bankanna hafa vextir og vaxtaálag á útlánum í erlendum gjaldmiðlum einnig lækkað, bæði til minni og stærri fyrirtækja. Stafar það einkum af lægri fjármögnunarkostnaði bankanna en einnig lækkun meginvaxta Seðlabankans. Gert er ráð fyrir óbreyttum vöxtum og vaxtaálagi á útlánum í erlendum gjaldmiðlum á næstu sex mánuðum, þar sem lægri fjármögnunarkostnaður og regluverk vega hvort á móti öðru.
Sjá nánari upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar og fleira hér: Útlánakönnun
1) Í könnuninni er lánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Lánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma- og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um lán í erlendum gjaldmiðlum, bæði fyrir heimili og fyrirtæki.