
Skilaáætlun samþykkt fyrir Kviku banka
.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Skilavald Seðlabanka Íslands hefur samþykkt skilaáætlun fyrir Kviku banka. Áætlunin nær til framkvæmdar skilameðferðar bankans ef til þess kæmi að fjárhagsstaða bankans yrði svo slæm að hann teldist vera á fallanda fæti.
Komi til falls lánastofnunar felur skilaáætlun í sér að mögulegt verði að endurreisa hana hratt og örugglega, án opinbers fjárstuðnings frá ríkissjóði eða Seðlabankanum. Skilameðferðin á að tryggja að almenningur og fyrirtæki hafi áfram óheftan aðgang að nauðsynlegri starfsemi (e. critical function) og styðja með því við fjármálastöðugleika í landinu.
Við samþykkt skilaáætlunarinnar tók skilavaldið ákvörðun um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) Kviku banka, í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020. MREL-kröfurnar eru byggðar á lögunum og MREL-stefnu Seðlabankans, en þeim er ætlað að styðja við skilaáætlanir og tryggja að hægt verði að endurreisa banka sem er á fallanda fæti. Bönkum ber ávallt að uppfylla MREL-kröfur sem gerðar eru til þeirra.
Skilaáætlanir eru unnar í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, auk reglugerða og reglna sem settar eru á grundvelli laganna. Hver skilaáætlun byggir á mati á skilabærni viðkomandi banka en í matinu felst greining á starfsemi viðkomandi banka og rökstuðningur fyrir þeirri leið sem fara ber, ef hann fellur, með hliðsjón af markmiðum skilameðferðar. Á meðal helstu markmiða skilameðferðar er að tryggja að fall banka hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini hans, að lágmarka hættu á að veita þurfi fjárframlög úr ríkissjóði auk þess að lágmarka neikvæðar afleiðingar fjármálaáfalls.
Nánari upplýsingar um starfsemi skilavaldsins og skilameðferð banka má finna á vef Seðlabankans: Skilavald Seðlabanka Íslands