logo-for-printing

05. febrúar 2025

Peningamál birt

Ritið Peningamál 2025/1 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Í Peningamálum gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Ritið kemur út fjórum sinnum á ári.

Í byrjun maí og byrjun nóvember er þar birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Í febrúar og ágúst er birt uppfærð verðbólgu- og þjóðhagsspá með styttri umfjöllun um þróun og horfur efnahags- og peningamála. Greiningin og spáin gegnir síðan mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar.

Sjá hér: Peningamál 2025/1

Sjá hér: yfirlit yfir efni Peningamála

Sjá hér tengil í útgáfur bankans, þar á meðal Peningamál: Úgáfur bankans, m.a. Peningamál

Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin: Sjá hér rit bankans á ensku.
Til baka