logo-for-printing

27.08.2003

Erindi Birgis Ísl. Gunnarssonar um Seðlabankann og peningastefnuna

Birgir Ísl. Gunnarsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, flutti í dag erindi hjá Rótarýklúbbi Reykjavíkur um Seðlabankann og Peningastefnuna. Í upphafi erindisins sagði Birgir: 'Ég hef verið beðinn um að fjalla hér um stöðu og horfur í efnahags- og peningamálum út frá sjónarmiði Seðlabanka Íslands. Áður en ég vík að því tel ég rétt að fjalla nokkuð um umgjörð peningastefnunnar eins og hún hefur verið frá því í mars 2001. Ég geri það vegna þess að í hinni opinberu umræðu gætir enn oft misskilnings um hlutverk Seðlabankans og möguleika hans til að hafa áhrif á einstaka þætti efnahagsmálanna. Þessi vísa virðist því aldrei of oft kveðin. '

Erindið fylgir hér með í heild sinni ásamt skýringarmyndum sem birtar voru með erindinu.

Erindi Birgis Ísl. Gunnarssonar (pdf-skjal, 95 kb)

Skýringarmyndir með erindi formanns bankastjórnar (PP-skjal, 148 kb)

Til baka