logo-for-printing

22.10.2007

Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington

Sameiginlegur ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans var haldinn dagana 19.- 22. október 2007 í Washington, auk þess sem fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var einnig haldinn.

Finnland gegnir formennsku í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltslanda í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á árunum 2006 og 2007. Fjármálaráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, talaði fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni.

Ársfundarræða Norðurlandanna var flutt af Nils Bernstein, seðlabankastjóra í danska seðlabankanum. Ræður fulltrúa kjördæmisins eru birtar í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.


Ræða kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í fjárhagsnefndinni haustið 2007 (pdf-skjal)

Ársfundarræða Norðurlandanna 2007 (pdf-skjal) 

Til baka