logo-for-printing

Gengi

Nýjasta skráða opinbera viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands: 26.7.2024
Gjaldmiðill Mynt Miðgengi
Bandaríkjadalur USD 138,03
Sterlingspund GBP 177,65
Kanadadalur CAD 99,87
Dönsk króna DKK 20,087
Norsk króna NOK 12,558
Sænsk króna SEK 12,776
Svissneskur franki CHF 156,24
Japanskt jen JPY 0,8931
SDR XDR 183,14
Evra EUR 149,9
Kínverskt júan CNY 19,035
Ný-Sjálenskur dalur NZD 81,35
Ástralíudalur AUD 90,52
Hong Kong dalur HKD 17,681
Suður-Afrískt rand ZAR 7,566
Tékknesk króna CZK 5,909
Ungversk forinta HUF 0,3834
Tyrknesk líra TRY 4,19
Pólskt slot PLN 35,073
Nígerísk næra NGN 0,0865
Tævanskur dalur TWD 4,2104
Suðurkóreskt vonn KRW 0,0996
Súrinamskur dalur SRD 4,745
Ísraelskur sikill ILS 37,675
Singapúrskur dalur SGD 102,71
Mexíkóskur pesi MXN 7,523
Indversk rúpía INR 1,6482
Búlgarskt lef BGN 76,64
Brasilískt ríal BRL 24,505
Taílenskt bat THB 3,8326
Jamaískur dalur JMD 0,8824
Sádi-arabískt ríal SAR 36,796
Skráning: 26.07.2024

 

Opinbert viðmiðunargengi Seðlabankans er uppfært daglega á vef bankans um kl. 16

Ofangreind viðmiðunargengi eru ekki ætluð til notkunar í markaðsviðskiptum, eða í almennum viðskiptum við fjármálafyrirtæki, beint eða óbeint, heldur er birting á opinberu viðmiðunargengi eingöngu í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði sem er opinn á milli kl. 9:15 og 16:00 hvern virkan dag. Einu sinni á dag skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum, til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin, sbr. 29. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabankann, og um leið er skráð opinber gengisskráningarvísitala. Þetta er gert um kl. 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European Time) á hverjum degi sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt starfandi. Viðmiðunargengið birtist opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á staðartíma hvern viðskiptadag. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið fellt niður skráningu á gengi krónunnar. 

Hinn 1. febrúar 2018 hóf Seðlabanki Evrópu að skrá gengi íslensku krónunnar að nýju, en því var hætt 3. desember 2008. Gengisskráningu Seðlabanka Evrópu má sjá hér á vefsíðu Seðlabanka Evrópu.

Gengi annarra gjaldmiðla má finna á ýmsum vefsíðum, t.d. oanda.com. Seðlabanki Íslands ber enga ábyrgð á upplýsingum sem er að finna á slíkum vefsíðum eða notkun aðila á þeim auk þess sem minnt er á almennan fyrirvara um áreiðanleika upplýsinga á vefnum, samanber það sem segir á síðu um höfundarétt og afsal ábyrgðar.

Upplýsingar um gengi gjaldmiðla er einnig hægt að nálgast á XML- formi. 

 

Breytingar á gengisskráningu

Frá og með 31. ágúst 2020 skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi um klukkan 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European time) til samræmis við verklag sem þekkist í nágrannalöndum. Viðmiðunargengið er birt opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á íslenskum tíma hvern viðskiptadag en ekki um klukkan 11:00 eins og áður. Seðlabankinn leggur áherslu á að gengi gjaldmiðla er eingöngu birt í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

Frá og með 1. apríl 2020 var sú breyting gerð að Seðlabankinn birti eingöngu skráð miðgengi allra gjaldmiðla sem bankinn skráir og er það þá opinbert viðmiðunargengi. Birting á kaup- og sölugengi gjaldmiðla lagðist þá af. Þetta verklag er til samræmis við verklag seðlabanka í samanburðarlöndum. Frétt um breytingar á gengisskráningu Seðlabanka Íslands má sjá hér á vefsíðu bankans.

 

Rússneska rúblan ekki skráð

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hætta tímabundið að skrá opinbert gengi rússneskrar rúblu gagnvart íslenskri krónu. Ástæða ákvörðunarinnar er sú að Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur hætt skráningu á gengi rúblunnar gagnvart evru vegna þeirra aðstæðna sem nú ríkja. Gengi íslenskrar krónu gagnvart rússneskri rúblu hefur byggst á gengisskráningu ECB. 

Tilkynning Seðlabanka Evrópu (ECB)
(Þetta er birt 9.3.2022)

 

Sýna allt

  • Leiðréttingar