logo-for-printing

Gengi

Nýjasta skráða opinbera viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands: 30.8.2024
Gjaldmiðill Mynt Miðgengi
Bandaríkjadalur USD 137,91
Sterlingspund GBP 181,76
Kanadadalur CAD 102,34
Dönsk króna DKK 20,499
Norsk króna NOK 13,111
Sænsk króna SEK 13,489
Svissneskur franki CHF 162,38
Japanskt jen JPY 0,9486
SDR XDR 185,73
Evra EUR 152,9
Kínverskt júan CNY 19,457
Ný-Sjálenskur dalur NZD 86,34
Ástralíudalur AUD 93,8
Hong Kong dalur HKD 17,686
Suður-Afrískt rand ZAR 7,827
Tékknesk króna CZK 6,108
Ungversk forinta HUF 0,3895
Tyrknesk líra TRY 4,05
Pólskt slot PLN 35,755
Nígerísk næra NGN 0,0866
Tævanskur dalur TWD 4,3164
Suðurkóreskt vonn KRW 0,1034
Súrinamskur dalur SRD 4,776
Ísraelskur sikill ILS 37,992
Singapúrskur dalur SGD 105,88
Mexíkóskur pesi MXN 7,027
Indversk rúpía INR 1,645
Búlgarskt lef BGN 78,18
Brasilískt ríal BRL 24,6
Taílenskt bat THB 4,0729
Jamaískur dalur JMD 0,8805
Sádi-arabískt ríal SAR 36,758
Skráning: 30.08.2024

 

Opinbert viðmiðunargengi Seðlabankans er uppfært daglega á vef bankans um kl. 16

Ofangreind viðmiðunargengi eru ekki ætluð til notkunar í markaðsviðskiptum, eða í almennum viðskiptum við fjármálafyrirtæki, beint eða óbeint, heldur er birting á opinberu viðmiðunargengi eingöngu í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

Gengi íslensku krónunnar er ákvarðað á gjaldeyrismarkaði sem er opinn á milli kl. 9:15 og 16:00 hvern virkan dag. Einu sinni á dag skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum, til viðmiðunar í opinberum samningum, dómsmálum og öðrum samningum milli aðila þegar önnur gengisviðmiðun er ekki sérstaklega tiltekin, sbr. 29. gr. laga nr. 92/2019 um Seðlabankann, og um leið er skráð opinber gengisskráningarvísitala. Þetta er gert um kl. 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European Time) á hverjum degi sem skipulegir gjaldeyrismarkaðir eru almennt starfandi. Viðmiðunargengið birtist opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á staðartíma hvern viðskiptadag. Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn tímabundið fellt niður skráningu á gengi krónunnar. 

Hinn 1. febrúar 2018 hóf Seðlabanki Evrópu að skrá gengi íslensku krónunnar að nýju, en því var hætt 3. desember 2008. Gengisskráningu Seðlabanka Evrópu má sjá hér á vefsíðu Seðlabanka Evrópu.

Gengi annarra gjaldmiðla má finna á ýmsum vefsíðum, t.d. oanda.com. Seðlabanki Íslands ber enga ábyrgð á upplýsingum sem er að finna á slíkum vefsíðum eða notkun aðila á þeim auk þess sem minnt er á almennan fyrirvara um áreiðanleika upplýsinga á vefnum, samanber það sem segir á síðu um höfundarétt og afsal ábyrgðar.

Upplýsingar um gengi gjaldmiðla er einnig hægt að nálgast á XML- formi. 

 

Breytingar á gengisskráningu

Frá og með 31. ágúst 2020 skráir Seðlabanki Íslands opinbert viðmiðunargengi um klukkan 14:15 á mið-evrópskum tíma (e. Central European time) til samræmis við verklag sem þekkist í nágrannalöndum. Viðmiðunargengið er birt opinberlega á heimasíðu bankans um klukkan 16:00 á íslenskum tíma hvern viðskiptadag en ekki um klukkan 11:00 eins og áður. Seðlabankinn leggur áherslu á að gengi gjaldmiðla er eingöngu birt í upplýsingaskyni og til að fullnægja lagakröfum.

Frá og með 1. apríl 2020 var sú breyting gerð að Seðlabankinn birti eingöngu skráð miðgengi allra gjaldmiðla sem bankinn skráir og er það þá opinbert viðmiðunargengi. Birting á kaup- og sölugengi gjaldmiðla lagðist þá af. Þetta verklag er til samræmis við verklag seðlabanka í samanburðarlöndum. Frétt um breytingar á gengisskráningu Seðlabanka Íslands má sjá hér á vefsíðu bankans.

 

Rússneska rúblan ekki skráð

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hætta tímabundið að skrá opinbert gengi rússneskrar rúblu gagnvart íslenskri krónu. Ástæða ákvörðunarinnar er sú að Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur hætt skráningu á gengi rúblunnar gagnvart evru vegna þeirra aðstæðna sem nú ríkja. Gengi íslenskrar krónu gagnvart rússneskri rúblu hefur byggst á gengisskráningu ECB. 

Tilkynning Seðlabanka Evrópu (ECB)
(Þetta er birt 9.3.2022)

 

Sýna allt

  • Leiðréttingar