logo-for-printing

07. ágúst 2001

Helstu liðir í efnahag Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í júlí 2001 og frá ársbyrjun 2001.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði um 1,6 milljarða króna í júlí og nam 34,2 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 342 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 2,5% í mánuðinum.

Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 0,7 milljarða króna í mánuðinum og námu 28,3 milljörðum króna í júlílok.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5 milljörðum króna í júlílok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,8 milljarða króna í júlí og námu 40,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig lítillega í mánuðinum og voru 23,7 milljarðar króna í lok mánaðarins.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 4,8 milljarða króna í júlí og voru neikvæðar um 8,7 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 8,7 milljörðum króna.

Grunnfé bankans hækkaði lítillega í júlímánuði og nam það 30,1 milljarði króna í lok hans.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

 

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna 
   Staða í lok tímabils  Hreyfingar 2001 
   Desember 2000   Júlí  2001  Frá áramótum Í júlí 
 Eignaliðir        
 Gjaldeyrisforði  34.285  34.212  -73  -1.623
 Markaðsskráð verðbréf  6.546  5.049  -1.497  33
    Ríkissjóðs  3.682  2.095  -1.587  17
    Annarra  2.865  2.954  89  17
 Kröfur á innlánsstofnanir  38.978  40.520  1.543  -1.834
 Kröfur á aðrar fjármálastofnanir  13.074  23.733  10.659  -135
 Skuldaliðir        
 Erlendar skuldir til skamms tíma  15.763  28.282  12.519  -741
 Seðlar og mynt  8.672  9.052  380  118
 Almennar innstæður innlánsstofnana  2.495  2.412  -82  513
 Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana  21.249  18.591  -2.658  -564
 Almennar innstæður annarra fjármálastofnana  745  434  -311  -692
 Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana  759  4.267  3.508  2.291
 Liðir til skýringar        
 Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó  18.522  5.930  -12.592  -882
 Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó  -12.119  -8.726  3.393  4.815
 Kröfur á aðra, brúttó  52.207  64.341  12.134  -1.983
 Grunnfé  32.416  30.056  -2.360  68


Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Til baka