logo-for-printing

19. október 2001

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 36,2 ma.kr

 

Nr. 42/2001

16. október 2001

 

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 16. október. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

 

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 36,2 milljarðar króna en á innlausn voru 33,5 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 23. október 2001.

 

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

 

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.

 

 

 

 

Til baka