logo-for-printing

27. ágúst 2002

Kaup Seðlabanka Íslands á gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði

Í ágústhefti ársfjórðungsrits Seðlabanka Íslands Peningamálum var skýrt frá því að Seðlabankinn hygðist kaupa gjaldeyri á innlendum gjaldeyrismarkaði í því skyni að styrkja gjaldeyrisstöðu sína. Seðlabankinn hefur kynnt viðskiptavökum(1)  á gjaldeyrismarkaði hvernig hann hyggst standa að kaupunum. Stefnt verður að því að kaupa Bandaríkjadali að andvirði allt að 20 milljörðum íslenskra króna fyrir lok næsta árs. Ekki er um eiginlega peningamálaaðgerð að ræða til að hafa áhrif á gengi íslensku krónunnar heldur er markmið kaupanna einungis að efla gjaldeyrisstöðu bankans.
Seðlabankinn mun kaupa gjaldeyri af viðskiptavökum með tvennum hætti:

1. Regluleg kaup. Allt að þrisvar í viku verða keyptar 1,5 m. USD (jafnvirði nú um 130 m.kr.) í hvert sinn. Kaupin fara fram á bilinu frá kl. 9:00 til 9:15, mánudaga, miðvikudaga og/eða föstudaga. Fjárhæð hverra kaupa er aðeins brot af venjulegri veltu á innlenda gjaldeyrismarkaðnum.

2. Óregluleg kaup . Seðlabankinn er reiðubúinn til að kaupa gjaldeyri af viðskiptavökum að þeirra frumkvæði í hærri fjárhæðum, en forsenda þess er að gengi krónunnar hafi styrkst frá síðustu skráningu.

Telji Seðlabankinn aðstæður á gjaldeyrismarkaði þannig að ekki séu forsendur til gjaldeyriskaupa þegar þau hefðu annars farið fram áskilur hann sér rétt til að eiga ekki viðskipti að sinni.
Regluleg gjaldeyriskaup á markaði hefjast 2. september n.k.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

 

Nr. 28/2002
27. ágúst 2002

(1) Viðskiptavakar á gjaldeyrismarkaði eru: Búnaðarbanki Íslands hf., Kaupþing banki hf., Íslandsbanki hf. og Landsbanki Íslands hf.

Til baka