logo-for-printing

30. desember 2008

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2008

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2007. Endurskoðun fór síðast fram í desember 2007. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. desember 2008 til næstu endurskoðunar að ári.G

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi.   

Þrengri vöruskiptavog (A) og þrengri viðskiptavog (C)

  • Rússnesk rúbla bætist við 

Breið vöruskiptavog (B) og breið viðskiptavog (D):

  • Tævanskur dalur

  • Súrinamskur dalur falla út

Aðrar breytingar eru þær helstar að vægi evru eykst nokkuð og vægi Bandaríkjadals minnkar. Seðlabankinn mun hætta birtingu vísitölu gengisskráningar með grunn 31.12 1991 í árslok 2008, en gjaldmiðlavog vísitölunnar hefur ekki verið breytt frá júlí 2005.  

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum: 

Vogir 2008, byggðar á gögnum 2007

Vogir 2008

Til baka