15. ágúst 2014
Már Guðmundsson endurskipaður seðlabankastjóri
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skv. 1. mgr. 23. gr. laga um Seðlabanka Íslands skipað Má Guðmundsson í embætti seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2014.
Már Guðmundsson hefur verið seðlabankastjóri frá 20. ágúst 2009 en fyrra skipunartímabili hans lýkur 20. þessa mánaðar. Már lauk BA prófi í hagfræði frá háskólanum í Essex auk þess sem hann stundaði nám í hagfræði og stærðfræði við Gautaborgarháskóla. Hann er með M-phil. gráðu í hagfræði frá háskólanum í Cambridge og stundaði þar doktorsnám. Már gegndi starfi aðstoðarframkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss frá árinu 2004 til 2009. Hann starfaði áður í Seðlabanka Íslands í um tvo áratugi og þar af sem aðalhagfræðingur í rúm tíu ár. Már var efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra frá 1988-1991. Már hefur ritað fjölda greina og ritgerða um peninga- og gengismál og skyld efni.
Af þessu tilefni hefur Már Guðmundsson seðlabankastjóri gefið út eftirfarandi yfirlýsingu:
„Fjármála- og efnahagsráðherra hefur í dag skipað mig í stöðu seðlabankastjóra til fimm ára. Í skipunarbréfi sínu vekur ráðherrann athygli á því að hafin er vinna við heildarendurskoðun laga um Seðlabanka Íslands. Eins og áður hefur komið fram tel ég fulla þörf á þeirri endurskoðun. Seðlabanki Íslands hefur lagt því verkefni það lið sem hann getur og eftir hefur verið leitað. Endurskoðunin mun að mínu mati kalla á einhverjar breytingar varðandi stjórnskipun bankans. Þar eru mismunandi kostir í boði og ég get ekki spáð fyrir um hver endanleg ákvörðun Alþingis verður í þeim efnum. Hitt er mér ljóst að þær breytingar gætu haft í för með sér að endurráðið yrði í yfirstjórn bankans.
Ég tel í þessu sambandi rétt að upplýsa að ég hef í nokkur ár haft hug á að skoða möguleikann á að hverfa á ný til starfa erlendis áður en aldursmörk hamla um of. Ég taldi ekki heppilegt að gera það nú í ljósi ástandsins og verkefnastöðunnar í Seðlabankanum auk fjölskylduaðstæðna. Þetta mun breytast á næstu misserum. Það er því óvíst að ég myndi sækjast eftir endurráðningu komi til slíks ferlis vegna breytinga á lögum um Seðlabanka Íslands á næstu misserum.
Ég vil þakka ráðherranum traustið. Nú liggur fyrir að snúa sér að fullum krafti að þeim miklu verkefnum sem við blasa varðandi það að losa fjármagnshöft, varðveita verðstöðugleika, styrkja umgjörð um fjármálastöðugleika og efla Seðlabanka Íslands enn frekar sem stofnun sem glímir við stærri verkefni en oftast áður í sögu sinni.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki Seðlabanka Íslands mikla og góða vinnu á því skipunartímabili mínu sem nú er að ljúka. Árangur Seðlabankans veltur að miklu leyti á því góða og hæfa starfsliði sem þar starfar."
Nr. 25/2014
15. ágúst 2014
15. ágúst 2014